Í áfanganum fá nemendur þjálfun í að lesa og gera uppdrætti af algengum húsgögnum. Þeir teikna hornréttar fallmyndir eftir ákveðnum frummyndum, sniðmyndir, skurði og hlutamyndir þar sem fram koma samsetningar, málsetningar og efnisnotkun m.m. Komið er inn á algengar útfærslur á húsgögnum, verklýsingar, fagheiti, málvik og teiknitákn m.m. Lögð er áhersla á að þjálfa notkun og skilning á hvers konar verkgögnum sem tengjast húsgagnasmíði og teikningu rissmynda við útfærslur deililausna. Fjallað er um framleiðslu húsgagna, framleiðsluferli, tímaáætlanir, gerð efnislista, efnisafföll og kostnaðarútreikninga á grundvelli verkgagna og upplýsinga frá seljendum.
TEIK2SA04AB
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
stöðluðum stærðum í húsgagnaframleiðslu.
framleiðsluferli.
lestri teikninga og verklýsinga
gerð efnislista.
efnisnotkun og nýtingu.
uppbyggingu og samsetningu á algengum gerðum húsgagna.
stöðluðum málum á helstu tegundum húsgagna.
reglum sem gilda um einstakar samsetningar.
upplýsingum og leiðbeiningum um gerð og viðhald húsgagna.
fagheitum og skilgreiningum í húsgagnateikningum.
gerðum uppdrátta og teikninga og öllum almennum teiknitáknum.
teikniaðferðum og teiknireglum fyrir húsgagnateikningar.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
gera kostnaðarútreikninga og verklýsingar.
vinna eftir reglugerðum.
vinna eftir teikningum og verklýsingum.
teikna/rissa vinnuteikningar.
vinna og hugsa sjálfstætt.
lesa fagbækur og tækniupplýsingar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
öðlast innsýn í tæknilegar útfærslur algengra húsgagna.
lesa og vinna með teikningar af húsgögnum.
lesa og skilja merkingar á teikningum og meðfylgjandi verklýsingar.
lýsa framleiðsluferli og gera tímaáætlanir með hliðsjón af teikningu.
gera efnislista og kostnaðarútreikninga á grundvelli teikninga.
yfirfæra teikningar í skapalón í mismunandi mælikvörðum og teikna algeng húsgögn.
gera fríhendisrissmyndir, flatar‐ og rúmteikningar af húsgögnum.
gera sniðmyndir, skurði og hlutamyndir af húsgögnum með málvikum.
skilja tækniupplýsingar sem fylgja brautum og fylgihlutum