Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1591882392.94

    Vél- og trésmíð
    TRÉS1SA07(BB)
    18
    trésmíði
    Trésmíði
    Samþykkt af skóla
    1
    7
    BB
    Í áfanganum eru kennd grunnatriði trésmíða með áherslu á þekkingu og færni í trésamsetningum, límingum, pússningu og yfirborðsmeðferð. Haldið er áfram umfjöllun um efnisfræði tréiðna þar sem ítarlegar er farið í ýmsa eðliseiginleika viðar, flokkun, merkingar og þurrkun. Nemendur kynnast notkun algengra tegunda viðarlíms og yfirborðsefna, vinnubrögðum og öryggisþáttum. Kennslan byggist að hluta á fyrirlestrum þar sem kennari útskýrir grunnatriði fyrir nemendum en stærsti hlutinn eru fjölbreytileg smíðaverkefni. Í áfanganum læra nemendur grunnatriði í véltrésmíði. Fjallað er um algengustu trésmíðavélar, meðferð þeirra, viðhald og notkun. Lögð er áhersla á notkunarleiðbeiningar og merkingar á tækjum og búnaði. Kennsla í áfanganum byggir á innlögnum frá kennara þar sem hann útskýrir grunnatriði fyrir nemendum með sérstakri áherslu á öryggisþætti en að öðru leyti er aðaláherslan á verkefni þar sem nemendur fá þjálfun í notkun véla og tækja. Mikilvægt er að nemendur læri ábyrgð í umgengni við trésmíðavélar og að takast ekki á við vélavinnu án fullnægjandi undirbúnings, hjálpar‐ og öryggisbúnaðar.
    TRÉS1SA06AB
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • vinnuaðstöðu og vinnumhverfi.
    • umgengni, ábyrgð, notkun og viðhaldi á algengustu trésmíðavélum.
    • öryggisþáttum og viðhaldi trésmíðavéla.
    • vinnuaðstöðu og vinnumhverfi tiltekinna trésmíðavéla.
    • smíðisfestingum sem notaðar eru í trésmíði.
    • einstökum samsetningum og notkunarsviði þeirra.
    • grunnatriðum í yfirborðsmeðferð smíðaviðar og plötuefnis.
    • helstu yfirborðsefnum á tré og notkunarsviðum þeirra.
    • algengustu slysavöldum og slysum í véltrésmíði og afleiðingum þeirra.
    • öryggisreglum og öryggisbúnaði sem notaður er í véltrésmíði.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota áhöld til mælinga og uppmerkinga.
    • nota mismunandi tegundir verkfæra, véla og efna.
    • nota helstu trésamsetningar við einfalda trésmíði.
    • lesa merkingar og flokka efni með tillit til útlits og styrks.
    • nota mismunandi tegundir verkfæra, véla og efna á byggingarstað og verkstæðum.
    • skipta um helstu skurðarverkfæri undir eftirliti.
    • smíða einfalda hluti í trésmíðavélum undir eftirliti.
    • beita algengustu stillingum og nota aukabúnað.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • aðlaga sig að mismunandi vinnuumhverfi.
    • velja smíðavið fyrir einstök verkefni og rökstyðja valið.
    • viðhalda og yfirfara ástand öryggisþátta trésmíðavéla.
    • undirbúa og framkvæma verk fyrir yfirborðsmeðferð og beita öryggisreglum.
    • smíða einfalda nytjahluti eftir teikningum og verklýsingum.
    • beita vinnuskipulagi í trésmíði og fylgja aðgerðalista við vinnu.
    • efna niður og vinna tré í höndum fyrir endanlega samsetningu.
    • meta gæði smíðishluta fyrir samsetningu.
    • velja trésmíðavélar með hliðsjón af verkefni og annast viðhald þeirra.
    • athuga rétta virkni og nota öryggisbúnað fyrir gangsetningu véla.
    • nota rétta staðsetningu og líkamsbeitingu við vélavinnu.
    Símat.