Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1597675114.83

    Lýðheilsa
    LÝÐH1HE04
    41
    lýðheilsa
    Heilsurækt og ég
    Samþykkt af skóla
    1
    4
    Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Áfanginn er bóklegur og fer fram í formi umræðna og tímaverkefna. Unnið verður með forvarnir sem tengjast hreyfingu, næringu, umhverfi, áfengi, reykingum, fíkniefnum, hreinlæti, tannheilsu, kynsjúkdómum og getnaðarvörnum. Lögð verður áhersla á að auka heilsulæsi, en það eru hæfileikar sem ráða því hversu vel nemanda gengur að nálgast upplýsingar og nýta sér þær til að efla og viðhalda góðri heilsu.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Hugtökunum um forvarnir og heilbrigði
    • Mikilvægi góðrar heilsu
    • Hvað reglubundin hreyfing er góð forvörn
    • Helstu flokkum næringarefna
    • Mikilvægi þess að velja hollt mataræði framyfir óhollt
    • Skaðsemi reykinga, áfengis og vímuefna á líkamlega, andlega og félagslega heilsu
    • Hvernig umhverfið og nærsamfélagið hefur áhrif á lífsgæði fólks
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Lesa innihaldslýsingar á matarumbúðum
    • Nýta sér heimasíður, bæklinga og rannsóknir til þess að viðhalda og/eða bæta eigin heilsu
    • Skipuleggja nám sitt og tíma
    • Að nýta sér eigin styrkleika í námi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Nýta heilsulæsi sitt til að nálgast upplýsingar og nýta sér þær til að efla og viðhalda góðri heilsu
    • Kynna verk sín, tjá og fylgja eftir skoðunum sínum fyrir framan hóp
    • Að taka ábyrgð á eigin lífi sem m.a. felur í sér að taka ábyrga afstöðu til fíkniefna og lyfja sem notuð eru til lækninga
    Leiðsagnarmat