Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1597747683.96

    Grunnáfangi í stærðfræði
    STÆR2AA05
    115
    stærðfræði
    algengar reikniaðgerðir
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Mengi, algebra, línur, föll, annars stigs jöfnur ofl.
    Nemendur hafi góð tök á almennu grunnskólanámsefni í stærðfræði.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mengjahugtökum og mengjaaðgerðum.
    • algebru, svo sem liðun, þáttun og styttingu brota, veldum og rótum.
    • hvernig hægt er að leysa orðadæmi með jöfnum og jöfnuhneppum.
    • eiginleikum beinnar línu í hnitakerfi, svo sem hallatölu og skurðpunktum við ása hnitakerfisins og skurðpunkts tveggja lína.
    • línulegum líkönum og myndrænum lausnum jöfnuhneppa.
    • hringjum og skurðpunktum snertla við hringi.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota mengjatákn.
    • liða, þátta og stytta algebrubrot, reikna veldi og rætur.
    • setja fram línuleg líkön og vinna með þau.
    • nota reiknivélar og forrit af öryggi og að beita þeim við útreikninga og til að leysa jöfnuhneppi .
    • vinna með fleygboga og skilji hvernig þeir líta út.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk í mæltu máli eða myndrænt.
    • setja sig inn í og túlka röksemdir annarra.
    • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu.
    • beita skipulegum aðferðum við leit að lausnum á þrautum úr kunnuglegu samhengi og útskýra aðferðir sínar og lausnir.
    • klæða hversdagsleg verkefni í stærðfræðilegan búning, leysa þau og túlka.
    • skilja röksemdir í mæltu máli og í texta og beita einföldum röksemdum.
    • átta sig á gildi stærðfræðinnar í öðrum námsgreinum svo sem náttúrufræði.
    Námsmat byggir á frammistöðu á mismunandi verkefnum og vinnu yfir önnina. Vinna yfir önnina samanstendur af verkefnavinnu, tímaæfingum (prófum) og heimaverkefnum. Sjá nánar í kennsluáætlun.