Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1598259627.4

    Stjórnmálafræði
    FÉLA3ST05
    34
    félagsfræði
    stjórnmálafræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum er stjórnmálafræði kynnt sem fræðigrein með áherslu á íslensk stjórnmál. Ásamt því eru málefni líðandi stundar skoðuð og tengd við fræðin. Fjallað er um helstu stjórnmálastefnur samtímans og ólíka hugmyndafræði sem hefur mótast í gegnum tíðina þ.e. vinstri og hægri stjórnmál, róttækni, sósíalismi, jöfnuður, lýðræði, frjálslyndi, íhald, afturhald, stjórnleysi ásamt innan- og utanríkismálum. Einnig er fjallað um stjórnkerfið og atriði tengd því þ.e. ríki og fullveldi, þjóðir, völd, stjórnmálaþátttöku, pólítískar valdbeitingar, byltingar, kosningar, flokkakerfi, mannréttindi, stjórnarskrá o.fl. Auk þess er fjallað um stjórnmál og fjölmiðla, almenningsálit, íslenska stjórnmálaflokka og hagsmunasamtök. Fjallað er um alþjóðastjórnmál með áherlsu á strúktúr og samvinnu alþjóðakerfisins.
    Að nemandi hafi lokið áfanganum FÉLA2AK06
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • stjórnmálafræði sem fræðigrein með áherslu á íslensk stjórnmál
    • málefnum líðandi stundar í tengslum við stjórnmálafræði
    • helstu stjórnmálastefnum samtímans þ.e. vinstri og hægri stjórnmál, róttækni, sósíalisma, jöfnuði, lýðræði, frjálslyndi, íhaldi, afturhaldi og stjórnleysi ásamt innan- og utanríkismálum
    • stjórnkerfi, ríki og fullveldi, þjóðum, völdum, stjórnmálaþátttöku, pólítíska valdbeitingu, byltingum, kosningum, flokkakerfum, mannréttindum, stjórnarskrá
    • áhrifum fjölmiðla á stjórnmál, almenningsáliti í stjórnmálum, íslenskum stjórnmálaflokkum og hagsmunasamtökum
    • alþjóðastjórnmálum þ.e. strúktúr og samvinnu alþjóðakerfisins
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • geta aflað sér traustra og áreiðanlegra upplýsinga um viðfangsefni stjórnmálafræðinnar
    • greint upplýsingar og sett í fræðilegt samhengi
    • tjá þekkingu sína á munnlegan og skriflegan hátt
    • vinna á sjálfstæðan og ábyrgan hátt undir leiðsögn
    • nýta margvíslega tækni í þekkingarleit og á ábyrgan og gagnrýnin hátt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • taka þátt í umræðum þar sem hann getur tjáð skoðanir sínar, rökstutt þær og hlustað á skoðun annarra
    • geta beitt öguðum vinnubrögð og borið ábyrgð á eigin námi
    • vinna sjálfstætt og í samvinnu við aðra
    • búa til og miðla rannsóknarverkefni
    • til að meta eigið vinnuframlag
    • búa yfir hæfni til að takast á við frekara nám
    Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metin jafnóðum allan námstímann. Til grundvallar matsins eru fjölbreytt verkefni úr ólíkum efnisþáttum.