Spænskunáminu er skipt í erfiðleikastig samkvæmt evrópsku tungumálamöppunni. Þessi áfangi er byrjunaráfangi í spænsku (A1) Í áfanganum er lögð áhersla á samskipti og tjáningu ásamt hinum fjórum þáttum tungumálanáms, samtali, ritun, lestri og hlustun. Áfanginn er verkfæri til að hjálpa nemendum að ná tökum spænskunni, á hvað námsbraut sem er. Mismunandi kennsluaðferðir eru notaðar til þess að ná markmiðum áfangans. Dæmi um leiðir eru matargerð, vettvangsferðir, leikir, tónlist, bókmenntir o.s.frv. Lögð er áhersla á að nemendur læri að bera ábyrgð á eigin námi.
engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
einföldum orðum og orðasamböndum úr daglegu tali
almennum málhljóðum í spænsku máli
einföldum orðum og orðasamböndum út daglegu tali
að heilsast og kveðjast, spyrja/biðja um/panta og bjóða aðstoð
bjarga sér á spænsku og fá algengar upplýsingar
að nota hjálpartæki sér til aðstoðar við námið
spænskri menningu, lönd þar sem spænska er töluð
tengslum á milli Íslands og spænskumælandi landa
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skilja og nota orð og orðasambönd á spænsku
skilja einfaldan texta og auglýsingar
spyrja og svara einföldum spurningum um þekkt efni
nýta sér grundvallaratriði úr spænskri málfræði (kyn, tala, beyging)
spyrja og svara einföldum spurningum um þekkt efni
taka þátt í einföldum samtölum
þekkja tölur, fjölda, kostnað og tíma
tjá sig við aðra bekkjarfélaga
læra að vinna með öðrum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
kynna sálfan sig og aðra
eiga einföld samskipti; svara og spyrja spurninga um persónulega þætti
lesa stutta texta á spænsku
skrifa stutta texta með útskýringum
hlusta og skilja einfalda texta
skapa nýjar hugmyndir eða lausnir á spænsku
nýta sér spænsku við áhugamál
geta unnið með öðrum
Fjölbreytt námsmat endurspeglar markmið áfangans í öllum færniþáttum í samræmi við evrópsku tungumálamöppuna (ETM). Símat sem byggist á ýmsum munnlegum og skriflegum verkefnum sem unnin eru yfir önnina.