Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1603113360.02

    Blak
    ÍÞRG2BL02
    25
    íþróttagrein
    blak
    Samþykkt af skóla
    2
    2
    Áfanginn er að mestu verklegur þar sem áherslan er blak fyrir unglinga og fullorðna, þ.e. frá 16 ára og eldri. Í áfanganum eru grunnatriði greinarinnar þjálfuð og æfð í gegnum æfingar, leiki og spil. Farið verður einnig í ólíkar stöður á vellinum (leikfræði> uppspilari, miðja, kantur, díó og frelsingi). Efni tengt viðfangsefninu verður sett á kennsluvef og nemendur vinna fjölbreytt verkefni, bæði verklega og bóklega, ýmist einir eða í hóp undir leiðsögn kennara.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • reglum íþróttarinnar
    • hlutverkum leikmanna og staðsetningum
    • tæknilegri útfærslu grunnatriða íþróttarinnar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • setja upp skipulagðan tímaseðil út frá getu iðkenda og markmiðum tímans
    • meta reglur íþróttarinnar við að horfa á kappleiki og dæma hjá samnemendum
    • geta spilað ólíkar stöður á vellinum
    • útfæra krefjandi æfingar til að æfa viðfangsefnin
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • dæma blakleik hjá samnemendum og/eða æfingaleiki
    • geta horft á blak og skilið leikinn, s.s. hvað sé verið að dæma, af hverju staðsetning leikmanna er eins og hún er o.s.frv
    • bera ábyrgð á því að skipuleggja og framkvæma kennslu hjá samnemendum þar sem grunnatriðin eru kennd
    • meta eigin leik og annarra og komið með hugmyndir að því hvað má bæta og þá hvernig
    • geta tekið þátt í umræðum um viðfangsefnin á faglegan og uppbyggilegan hátt
    Áfanginn er metinn út frá verkefnum, mætingu, virkni, færni og áhuga