Áfanginn miðar að því að gefa nemendum yfirlit og betri þekkingu á stúdíóupptökum, myndbandagerð, kynningu og sölu á hljóðrituðu efni ásamt því að kynnast dreifingu á streymisveitur.
Áhersla er lögð á að nemendur kynni sér ýmis verkefni sem að við koma útgáfu á hljóðrituðu efni og verði færir um að gefa út eigið efni og koma því á framfæri.
10 einingar á 2. þrepi í skapandi tónlist
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hljóðupptökum í stúdíói/hljóðveri
myndbandagerð
kynningu og sölu á hljóðrituðu efni
streymisveitum
skráningu á hljóðrituðu efni
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
taka upp eigið efni og ábreiður í stúdíói/hljóðveri
skipuleggja, taka upp og klippa myndband
kynna og selja eigið efni
koma hljóðrituðu efni á streymisveitur
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
taka upp og gefa út eigið efni og ábreiður
kynna og selja hljóðritað efni
taka faglegar ákvarðanir um hvernig skal dreifa hljóðrituðu efni
afla sér upplýsinga og þekkingar á réttindum til útgáfu hljóðritaðs efni
Áfanginn er með símat alla önnina, ásamt lokaverkefni. Öll verkefni annar gilda til einkunnar.