Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1606208975.0

    Lokaverkefni
    ALÞS3LV05
    1
    Alþjóðasamskipti
    Lokaverkefni
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Nemendur þjálfast í að vinna út frá grunnhugmynd að verkefni sem spannar heila önn og sýnir fram á þá heildarþekkingu, leikni og hæfni sem þeir hafa öðlast á námsferli sínum. Verkefnið verður unnið undir handleiðslu leiðbeinanda sem aðstoðar m.a. við að móta verkefnið og að skipuleggja verkframvinduna. Nemendur velja viðfangsefni tengt sérsviði sínu á alþjóðabraut, gera skriflega verkáætlun í upphafi annar ásamt því að ákveða skilaformið á verkefninu sjálfu. Lokaafurðin getur verið í formi ritgerðar, heimasíðu, hlaðvarps, myndbands, þýðingar, ferilmöppu eða á öðru því formi sem nemandi kýs í samráði við leiðbeinanda. Verkefnið getur verið að hluta til eða í heild á erlendu tungumáli, allt eftir eðli verkefnisins. Lögð er áhersla á að nemendur nýti sér þá þekkingu sem þeir hafa öðlast í námi sínu; sýni fram á sjálfstæð og skapandi vinnubrögð, færni í heimildavinnu og hæfni til að skipuleggja og gera grein fyrir vinnuferli verkefnisins. Nemendur þurfa að geta komið þekkingu sinni á viðfangsefninu á framfæri á skýran hátt bæði munnlega og skriflega. Í lok annar fer fram kynning á verkefninu og ferlinu við vinnslu þess.
    160 einingar af alþjóðabraut
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu reglum um heimildanotkun og skráningu
    • helstu aðferðum við vinnslu langtímaverkefnis
    • helstu aðferðum við úrvinnslu og mat heimilda
    • hvaða verkfæri og framsetningu best er að velja út frá viðfangsefninu
    • helstu aðferðum við framsetningu langtímaverkefnis bæði munnlegra og skriflegra
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • sýna frumkvæði, sjálfstæði og skapandi nálgun
    • vinna að verkefninu á sjálfstæðan máta og leggja mat á verkefnið og lokaafurðina
    • afla sér fjölbreyttra og fræðilegra heimilda um efnið
    • velja sér viðeigandi form fyrir lokaafurð verkefnisins
    • beita viðurkenndum aðferðum um meðferð og úrvinnslu heimilda
    • tjá sig á skýran og viðeigandi hátt um verkefnið bæði munnlega og skriflega
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • meta áreiðanleika heimilda
    • sjá samhengi undanfarinnna anna og samspil mismunandi námsgreina
    • greina frá og leggja mat á eigin verkefni og lokaafurð
    • leggja fram lokaafurðina, kynna hana og ferlið við vinnslu hennar á aðgengilegan og skýran hátt bæði munnlega og skriflega
    Um leiðsagnarmat verður að ræða. Horft verður til sjálfstæðra vinnubragða nemenda, málfars, efnistaka, frumleika, meðferðar heimilda við vinnslu verkefnisins og hæfni nemenda til að skipuleggja verkferlið og gera grein fyrir því. Lagt verður mat á munnlega kynningu í lok annar og lokaafurðina sjálfa.