Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1606502737.11

    Skyndihjálp með áherslu á bjargráð einstaklingsins
    SKYN1HS01
    8
    skyndihjálp
    hættur, minniháttar áverkar, skaði, slys
    Samþykkt af skóla
    1
    1
    Í áfanganum er fjallað um ýmsar hættur sem geta valdið skaða/slysum. Skoðaðar verða hættur á heimilum, vinnustöðum og í umhverfinu. Farið yfir helstu tegundir sára/meiðsla og meðferð við þeim. Mikilvægi neyðarlínunnar 112 kynnt nemendum.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • að meta aðstæður á heimilum og í umhverfi sem geta valdið skaða/slysum
    • að geta brugðist við minniháttar áverkum
    • að þekkja til neyðarlínunnar 112
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • varast hættur í umhverfinu
    • meta eigin færni í umönnun minniháttar áverka
    • meta hvort hringja þurfi í neyðarlínuna 112
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • gæta að eigin öryggi og annarra í umhverfinu
    • geta brugðist við af öryggi ef um minniháttar áverka er að ræða
    • geta haft samband við neyðarlínuna 112 ef þarf
    Einstaklingsmiðað námsmat - símat, betur útfært í einstaklingsnámskrá