Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1606905737.27

    Íþróttagrein Frjálsar/Bandý/Golf
    ÍÞRG1GF02
    11
    íþróttagrein
    Golf og frjálsar íþróttir
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    Í áfanganum læra nemendur að leiðbeina börnum undirstöðuatriði í frjálsum íþróttum, bandý og golfi. Lögð er áhersla á kennslu grunnfærni og leikfræði fyrir byrjendur. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grundvallarfærni í greininni. Farið er yfir helstu atriði í þjálffræði barna og mikilvægi þess að leikurinn sé greindur sundur í stuttar einingar, leikæfingar. Nemendur þjálfist í uppsetningu viðkomandi íþróttagreinum. Framkvæmd æfinga og áherslur. Áfanginn er bóklegur og verklegur.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • að leiðbeina börnum á mismundandi aldri í viðkomandi íþrótt
    • skipulagi á þjálfun fyrir börn og unglinga
    • leikreglum
    • helstu þjálfunaraðferðum
    • mikilvægi á fjölbreyttum tækni- og leikæfingum í þessum íþróttagreinum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • búa til tímaseðla fyrir mismunandi aldur
    • beita mismunandi þjálfunaraðferðum með ákveðin markmið að leiðarljósi svo sem þol, kraft og tækni
    • stunda frjálsar íþróttir, bandý og golf einnig geta miðla því frá sér
    • þjálfun í frjálsum, bandý og golfi í samvinnu við kennara
    • sýna og framkvæma ýmsar æfingar sem tengjast íþróttunum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta leiðbeint ýmsum aldurshópa í frjálsum, bandý og golfi í samvinnu við kennara
    • geta búið til tímaseðla, vikuáætlun og mánaðaráætlun með ákveðinn aldur í huga
    • geta beitt fjölbreyttum aðferðum við þjálfun