Nemendur öðlast þekkingu á uppbyggingu og notkun iðntölva PLC eða PAC og notkunarmöguleikum þeirra. Þeir fá þjálfun í forritun samkvæmt staðli IEC 61131-3 um forritunarmál, hönnun og greiningu á einföldum iðnstýrikerfum og tengingum þeirra. Áhersla er lögð á að nemendur fái innsýn í forritanlega örgjörva og hvernig hægt er að forrita þá og nota t.d í skynjararásum. Nemendur fá einnig innsýn í skynjaratækni sem er notuð með iðntölvum PLC og PAC.
RÖKR3IS04
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
flæðiritum (Sequential Function Chart), stigaritum (Ladder) og rökrásaritum (Function Block Diagram).
skipanalistum (Instruction List).
forritunarmálum fyrir iðntölvur (Structured Text).
algengum stærðum hliðrænna merkja að og frá iðntölvu og samskiptaformum milli einmenningstölvu og iðntölvu.
skjámyndakerfum fyrir iðntölvur.
viðbótar- og tengibúnaði, s.s. rofum, nándarnemum, hvernig þeir tengjast tölvunni og hvernig vinnuvélin, sem iðntölvan á að stjórna tengist henni.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
forrita örgjörva fyrir skynjararásir.
finna bilanir í iðnstýrikerfum.
mæla og greina skynjara.
nota iðntölvur til að stjórna tækjum og búnaði.
teikna upp myndir og kalla fram raunverulega atburði, magn, hita, stöðu o.fl. frá iðntölvu.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
rekja sig í gegnum forrit og leita uppi villur eða truflanir.
skilgreina og tengja ýmsan viðbótarbúnað við iðntölvur.
setja upp skjákerfi með SCADA.
prófa skynjara og stýringu með forritanlegum örgjörva.
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá.