Stærðfræðigreining, heildun, deildajöfnur, runur og raðir
STÆR3SH05
108
stærðfræði
Stærðfræðigreining, deildajöfnur, heildun, runur og raðir
Samþykkt af skóla
3
5
Heildareikningur og hagnýting heildareiknings. Fyrstastigs deildajöfnur og notkun deildajafna til að útskýra náttúruleg fyrirbæri. Runur og raðir.
STÆR3FM05 eða sambærilegur áfangi
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
tengsl deildunnar og heildunnar
helstu aðferðum við að leysa ákveðin og óákveðin heildi
fyrstastigs deildajöfnum
runum, röðum og þrepasönnunum
hagnýtingu framangreindrar stærðfræði á öðrum sviðum, s.s. í hagfræði, náttúruvísindum, umhverfismálum, tæknifræði o.s.frv.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita hlutheildun, innsetningu og brotaliðun við lausn heilda
meðhöndla punkta, línur og fleti og leysa verkefni í þrívíðri rúmfræði
setja upp og leysa fyrsta stigs deildajöfnur
nota þrepasannanir til að sanna reglur tengdar runum og röðum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt
átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta, þar með taldar sannanir í námsefni
beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s. s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.