Í áfanganum er fjallað um undirstöðuatriði félagsfræðinnar ásamt þeim hugmyndum sem hafa haft áhrif á þróun og mótun samfélagsgerðarinnar. Farið verður yfir samfélagslegar aðstæður fyrri kynlsóða í samanburði við nútímann, félagsfræðilegum hugtökum verða gerð skil og hvaða samfélagslegu þættir hafa mótandi áhrif á einstaklinginn. Einnig er fjallað um mismunandi félagsfræðileg sjónarhorn, frumkvöðla félagsfræðinnar ásamt kenningum og hugmyndum þeirra. Fjallað er um rannsóknaraðferðir og rannsóknarferli félagsvísinda þar sem eigindlegar og megindlegar rannsóknaraðferðir eru bornar saman og rannsóknarverkefni lagt fyrir nemendur. Auk þess er fjallað um frávik og afbrot og félagsleg áhrif þeirra á einstaklinginn og samfélagið.
Að nemandi hafi lokið áfanganum FÉLA2AK06
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
þróun og mótun samfélagsgerðarinnar
samfélagslegum breytingum á milli kynlslóða
margvíslegum félagsfræðilegum hugtökum
hvaða samfélagslegu atriði hafa mótandi áhrif á einstaklinginn
mismunandi félagsfræðilegum sjónarhornum
frumkvöðlum félagsfræðinnar ásamt kenningum þeirra og hugmyndum
rannsóknaraðferðum félagsvísinda
helstu einkennum frávika og afbrota og félagslegum áhrifum þeirra á einstaklinginn og samfélagið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
geta aflað sér traustra og áreiðanlegra upplýsinga um viðfangsefni félagsfræðinnar
greint upplýsingar og sett í fræðilegt samhengi
tjá þekkingu sína á munnlegan og skriflegan hátt
vinna á sjálfstæðan og ábyrgan hátt undir leiðsögn
nýta margvíslega tækni í þekkingarleit og á ábyrgan og gagnrýnin hátt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
taka þátt í umræðum þar sem hann getur tjáð skoðanir sínar, rökstutt þær og hlustað á skoðun annarra
geta beitt öguðum vinnubrögð og borið ábyrgð á eigin námi
vinna sjálfstætt og í samvinnu við aðra
búa til og miðla rannsóknarverkefni
til að meta eigið vinnuframlag
búa yfir hæfni til að takast á við frekara nám
Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metin jafnóðum allan námstímann. Til grundvallar matsins eru fjölbreytt verkefni úr ólíkum efnisþáttum.