Nemendur fái innsýn í fræðigreinina, helstu viðfangsefni hennar, rannsóknaraðferðir og sögu hennar. Fjallað verður um helstu sjónarmið í nútímasálfræði, ennfremur um minni og námstækni, viðbragðsskilyrðingu og tengsl hennar við daglegt líf, til dæmis ótta, lært bjargarleysi og áhrif auglýsinga; einnig um virka skilyrðingu í sambandi við t.d. uppeldi og hegðunarvandamál; og sjálfsmynd og samskipti. Nemendur æfa sig í fræðilegri hugsun.
Engar.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu sviðum sálfræðinnar og sögu hennar
kenningum sem markað hafa þáttaskil í sálfræði
hugmyndum þekktra sálfræðinga
rannsóknar- og starfsaðferðum sálfræðinga
rannsóknum þekktra sálfræðinga á borð við Pavlov og Skinner
nýjum straumum í sálfræði á borð við
gildi sálfræðinnar í daglegu lífi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
greina þá þætti sem sjálfsmynd er samsett úr
beita hugökum sálfræðinnar á skýran og skilmerkilegan hátt
greina grein fyrir niðurstöðum sálfræðirannsókna
setja fram spurningar og taka þátt í umræðu um sálfræðilegt efni
tjá kunnáttu sína á munnlegan og skriflegan hátt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja sálfræðilega umfjöllun ...sem er metið með... prófum, verkefnum og umræðum
gera greinarmun á geðveiki og siðblindu ...sem er metið með... prófi og verkefni
afla sér upplýsinga um sálfræðileg efni, greina aðalatriði þeirra og nýta sér til frekari vinnslu ...sem er metið með... verkefnum og rannsókn
vinna sjálfstætt og í samvinnu við aðra á gagnrýninn hátt ...sem er metið með... einstaklingsverkefnum og rannsókn sem unnin er í hóp
geta áttað sig á því hvenær málefni krefjast sálfræðilegrar umfjöllunar ...sem er metið með... umræðum í kennslustundum
Leiðsagnarmat þar sem vinna nemanda er metin jafnóðum allan námstimann. Til grundvallar matinu eru ýmis tímaverkefni og/eða próf auk lítllar rannsóknar.