Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1609922362.27

    Listir og sköpun með áherslu á listræna sköpun í Fablab tæknismiðju
    LISK1FL02
    4
    Listir á starfsbraut
    FabLab
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    Í áfanganum er leitast við að nemandinn fái tækifæri til að þroska hæfileika sína og færni til stafrænnar sköpunar í Fablab tæknismiðju. Lögð verður áhersla á að nemandinn búi til nytjahluti á stafrænan hátt og opni þannig augu sín fyrir möguleikum stafrænu smiðjunnar.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • að nemandinn þroski hæfileika sína og færni til stafrænnar sköpunar
    • helstu tækjum í Fablab tæknismiðju
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • þroska listræna hæfileika sína og hæfni í að þróa hugmynd af verki
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nýta eigin þekkingu og tæknilega hæfni til þess að nýta sér möguleika Fablab smiðjunnar
    Einstaklingsmiðað námsmat - símat, betur útfært í einstaklingsnámskrá