Í áfanganum er unnið að því að nemendur séu vel í stakk búnir til að marka sér framtíð og bera ábyrgð á þeirri leið sem þeir kjósa að námi loknu við Menntaskóla Borgarfjarðar. Kenndar eru leiðir til að efla sjálfsþekkingu og að taka ákvarðanir á yfirvegaðan hátt. Áhersla er lögð á að nemendur séu meðvitaðir um þá möguleika sem í boði eru í framhaldsnámi hérlendis og erlendis og þekki leiðir til að afla upplýsinga á þessu sviði. Lögð er áhersla á að nemendur geri sér grein fyrir samhengi menntakerfis og vinnumarkaðar og þekki nokkur einkenni íslensks vinnumarkaðar.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
kenningu John Hollands um áhugasvið
leiðum til að efla styrkleika og vinna með veikar hliðar
gerð náms- og starfsferilsskráa
framboði á framhaldsnámi hérlendis og erlendis og leiðum til að afla upplýsinga um nám og störf
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
finna upplýsingar um nám og störf og átta sig á kröfum sem gerðar eru til einstaklinga í mismunandi námi og störfum
skoða ólík störf og starfsumhverfið sem þeim tengist
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
til að þróa náms- og starfsferil sinn á uppbyggilegan hátt
nýta styrkleika sína sem best
Námsmat í áfanganum byggir á verkefnum, einstaklins- og hópverkefnum. Einnig á mætingu og ástundun í kennslustundum.