Það kom upp villa
senda inn
Áfangi
Áfangi Nánari upplýsingar
flokkunarfræði
Kynning á fjölbreytileika lífríkis jarðar. Nútíma flokkunarfræði er tekin til umfjöllunar og ýmis dæmi kynnt úr hverjum hóp.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- byggingu, fjölgun og sníkilseiginleikum veira
- byggingu, flokkun og æxlun baktería
- byggingu og lífsháttum sveppa, fléttna og frumvera
- völdum dæmum í lífsferlum há- og lágplantna
- þróun lífsferils plantna frá mosum til dulfrævinga
- sérhæfingu gró- og kynliðar plantna
- æxlun háplantna og aldinmyndun
- einkenni ein- og tvíkímblöðunga
- flokkunareinkennum helstu fylkinga dýraríkisins
- völdum dæmum úr helstu fylkingum dýra
- þróunartengslum vefdýra
- lögun og samhverfum dýra
- þróun líkamshols
- frum- og síðmynnla lífverum
- þróun fremdardýra
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- gera verklegar æfingar
- vinna skýrslur úr efni verklegra æfinga
- nota greiningalykla
- leysa verkefni sem tengjast flokkunarfræði lífvera
- leysa verkefni sem tengjast námsefninu almennt
- nýta upplýsingatækni við öflun efnis og heimilda við verkefnavinnu
- vinna sjálfstæð verkefni til kynningar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- tengja undirstöðuþekkingu í frumulíffræði og erfðafræði við námefni áfangans ...sem er metið með... upprifjun og sjálfsmati
- tengja undirstöðuþekkingu í flokkunarfræði við daglegt líf ...sem er metið með... fjölbreyttum verkefnum og umræðum
- þekkja/geta greint í ríki og fylkingar algengar lífverur í umhverfi okkar ...sem er metið með... margvíslegum verkefnum, skriflegum og verklegum
- bera virðingu fyrir og taka ábyrga afstöðu til hegðun sinnar m.t.t. lifandi náttúru ...sem er metið með... verkefnum og umræðum
- afla sér upplýsinga og frekari þekkingar varðandi viðfangsefnið ...sem er metið með... margvíslegum verkefnum
- undirbúa sig fyrir frekara nám í náttúruvísindum
Leiðsagnarmat þar sem vinna nemanda er metin jafnóðum allan námstímann.