Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1612259044.64

    Námsver
    NVER1NS01
    1
    Námsver
    námsaðstoð, sjálfsmynd
    Samþykkt af skóla
    1
    1
    Þessi áfangi er sérstaklega hugsaður fyrir þá nemendur sem skilgreindir hafa verið með ákveðna námsörðugleika en einnig þá nemendur sem einhverra hluta vegna náðu ekki lágmarksárangri á grunnskólaprófi. Farið verður yfir hvernig hægt er að nýta styrkleika nemenda og ná árangri í námi. Sjálfsmynd nemenda er markvisst styrkt með æfingum og þjálfun í þeim atriðum sem þeir eiga í erfiðleikum með í námi sínu. Nemendur fá tækifæri til að upplýsa kennara um það hvað það er sem þeir telja helst valda þeim vandræðum í námi. Hugmyndir til úrlausnar eru lagðar fram og þeim fylgt eftir í umræðum, verkefnum og sjálfsmati. Nemendur eru studdir í því að tileinka sér öguð vinnubrögð og að skipuleggja nám sitt. Mikil áhersla er lögð á það að nemendur taki ábyrgð á sjálfum sér sem námsmenn og nái að nýta sér þá hæfileika sem þeir búa yfir.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • námskröfum skólans
    • aðferðum til að skipuleggja tíma og nám
    • árangursríkum námsaðferðum
    • leiðum til að efla sjálfsmynd og eiga góð samskipti við aðra
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nýta tíma sinn vel og nota námsaðferðir sem skila árangri
    • setja sér markmið sem námsmaður og einstaklingur
    • eiga góð samskipti við aðra
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • efla styrkleika sína í námi
    • vinna sjálfstætt
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.