Það kom upp villa
senda inn
Áfangi
Áfangi Nánari upplýsingar
Íþróttaþjálfun
Íþróttaiðkun undir handleiðslu þjálfara Stjörnunnar. Áfanginn er verklegur og fer fram á æfingasvæði Stjörnunnar.
Að nemandi sé skráður iðkandi hjá Stjörnunni.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- að taka réttar ákvarðanir í keppni
- að njóta þess að iðka sína íþrótt
- að leiðin að árangri er löng og ströng
- mikilvægi liðsheildar og samvinnu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- bæta grunntækni í sinni íþrótt
- bæta útfærslur og skilvirkni í sinni íþrótt
- bæta sérhæfða tækni
- þroska stöðumat
- bæta hraða, kraft og úthald
- hjálpa öðrum iðkendum að bæta frammistöðu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- bæta frammistöðu í sinni íþrótt
- temja sér jákvætt viðhorf gagnvart sinni íþrótt
- temja sér þrautseigju