Lokaáfangar í fatahönnun eru tveir og FATA3lf05 er sá fyrri. Nemendur vinna sjálfstætt að hönnunarverkefni í formi þemavinnu. Nemendur skila hugmyndavinnu, fylgja skipulögðu vinnuferli í formi dagbókar, vinnuskýrslu þar sem tilgreindar eru forsendur fyrir hugmyndum, framkvæmd og framvindu verksins auk undirbúnings-, tilrauna- eða rannsóknarvinnu. Nemendur skila öllum sniðum og prufuflíkum í lok áfangans.
Allir áfangar á fatahönnunarsviði að undanskildum FATA3ls05.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hvað fólgið sé í sjálfstæðum, faglegum og skapandi vinnubrögðum varðandi framkvæmd verksins í öllu vinnuferlinu.
gerð vinnuáætlana, greiningu og endurmati verkþátta.
mikilvægi þess að rýna í eigið verk og annarra á uppbyggilegan hátt.
mikilvægi þess að geta komið vinnu sinni á framfæri á fjölbreyttan máta.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
taka sjálfstæða ákvörðun varðandi verkefnaval.
sýna sjálfstæð, fagleg og skapandi vinnubrögð varðandi framkvæmd verksins.
skilgreina forsendur fyrir hugmyndum, framkvæmd og framvindu verksins.
setja fram vinnuáætlun og greina verkþætti.
endurmeta hugmyndir sínar og framkvæmd verksins í öllu vinnuferlinu.
rýna í eigið verk og rökstyðja niðurstöður bæði munnlega og skriflega.
koma vinnu sinni á framfæri á fjölbreyttan máta.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tileinka sér sjálfstæð, fagleg og skapandi vinnubrögð sem er metið með verkefnum.
skilgreina forsendur, greina og endurmeta verkþætti sem er metið með verkefnum.
koma vinnu sinni á framfæri á fjölbreyttan máta sem er metið með verkefnum og munnlegri framsögn.
útbúa ferilmöppu sem nýst getur sem umsókn í nám og störf sem er metið með verkefnum.