Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1613569906.63

    Prjónles
    PRJN1PL05
    1
    Prjón
    Prjónles
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Nemendur fá kennslu í helstu grunnaðferðum prjóns og eru þjálfaðir í að beita þeim. Þeir fá æfingu í að lesa og skilja uppskriftir (á íslensku) og vinna eftir þeim. Meðal annars er kennt að fitja upp, fella af og auka út. Nemendur læra slétt prjón og brugðið og er þessum aðferðum beitt við mismunandi verkefni. Lögð er áhersla á að byggja upp sjálfstraust nemenda við prjón svo þeir þroski hæfileika sína og séu óhræddir að takast á við ný verkefni. Nemendur kynnast verkum íslenskra og erlendra handverksmanna og listafólks sem vinnur með prjóna og garn. Þá læra nemendur grunnatriði í einföldu hekli. Nemendur geta tekið áfangann oftar en einu sinni. Námið er einstaklingsmiðað og komið er til móts við nemendur út frá kunnáttu þeirra í prjóni.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu grunnaðferðum við prjón og hekl.
    • því að lesa úr og vinna eftir tilbúnum uppskriftum og geti haldið utan um vinnuferli á skipulagðan hátt í ferilmöppu.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita helstu grunnaðferðum við prjón og hekl.
    • lesa úr og vinna eftir tilbúnum uppskriftum.
    • halda utan um vinnuferli á skipulagðan hátt í ferilmöppu.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • fullvinna flík eftir uppskrift.
    • geta sýnt sjálfstæð vinnubrögð og sé fær um að afla sér viðbótarþekkingar.