Það kom upp villa
senda inn
Áfangi
Áfangi Nánari upplýsingar
Titill
Smíða- og lagnateikningar
Viðfangsefni
rörakerfi, smíða- og lagnateikningar
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla
Lýsing
Í áfanganum kynnast nemendur því hvernig leggja á rörakerfi samkvæmt ísómetrískum teikningum. Jafnframt læra þeir að teikna og útfæra smíða- og lagnateikningar fyrir einstök verkefni. Þeir skulu þekkja efnisstaðla um rör, suðufittings, flangsa, bolta og pakkningarefni og geta á eigin spýtur valið smíðaefni til skilgreindra verka. Ennfremur þjálfast þeir í að skipuleggja vinnu sína m.t.t. krafna um gæði, öryggi og umhverfi.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grundvallaratriðum einlínu lagnateikninga
grundvallaratriðum samkvarða (ísómetrískra) teikninga
efnisstöðlum viðvíkjandi rörum og suðufittings
stöðlum um flangsa og bolta
helstu pakkningarefnum og notkunarsviði þeirra
tækjum og handverkfærum sem notuð eru við lagningu rörakerfa
áhrifum þenslu í rörakerfum og aðgerðum til að mæta henni
forsendum fyrir vali lagnaefnis og suðugerða
aðferðum við þrýstiprófanir á rörakerfum og öryggisráðstafanir við slíkar prófanir
helstu reglugerðum um röralagnir og þrýstihylki
mismunandi gerðum festinga og upphengja fyrir rör og tækjabúnað
mismunandi gerðum einangrunar á röralögnum, þrýstihylkjum og vélbúnaði
öryggismálum vegna flutninga og vinnu við uppsetningar á vél og tækjabúnaði
öryggis- og hlífðarbúnaði
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
teikna og útfæra smíða- og lagnateikningar fyrir einstök verkefni
leggja rörakerfi samkvæmt samkvarða (ísómetrískum) teikningum
leggja rörakerfi samkvæmt einlínumyndum
teikna einfaldar einlínu lagnateikningar og samkvarða (ísómetrískar) teikningar, málsetja þær, velja efni og leggja rörakerfi samkvæmt þeim
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
áætla efnismagn eftir teikningu
sníða til rör og setja þau saman fyrir suðu
ganga frá flöngsum á röralögnum á fullnægjandi hátt
velja og smíða viðeigandi festingar, upphengjur og annan búnað sem þarf til að tryggja örugga uppsetningu lagna- og vélbúnaðar
þrýstiprófa einfalt lagnakerfi samkvæmt reglum Vinnueftirlits Ríkisins
Námsmat
Námsmat er útfært í námsáætlun í samræmi við skólanámskrá.