Það kom upp villa
senda inn
Áfangi
Áfangi Nánari upplýsingar
Rafmagnsfræði grunnur
Nemendur öðlast skilning á rafmagnsfræðinnar; mælieiningum og lögmálum sem þar gilda. Þeir öðlast þjálfun í að beita mælitækjum.
STÆR1RJ05 eða B í stærðfræði úr grunnskóla.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- grundvallarhugtökum rafmagnsfræðinnar.
- mælieiningum og stærðum í rafmagnsfræðinni.
- teiknitáknum íhluta og einföldum rafmagnsteikningum.
- hættum sem eru samfara því að umgangast og vinna við rafmagn.
- helstu íhlutum í rafmagnsrásum.
- helstu gerðum rafhlaða.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita þeim formúlum sem notaðar eru við útreikninga samkvæmt lögmálum Ohms, Kirchoffs og Watts.
- beita mælitækjum.
- teikna einfaldar rafteikningar.
- umgangast rafgeyma og rafhlöður.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- reikna samkvæmt lögmálum Ohms, Kirchoffs og Watts sem er metið með skriflegum og verklegum æfingum og prófum.
- hirða um rafgeyma og rafhlöður sem er metið með verklegum æfingum og prófum.
- teikna og útskýra straumrásir sem er metið með skriflegum verkefnum.
- beita mælitækjum sem er metið með skriflegum og verklegum æfingum og prófum.
Námsmat er útfært í námsáætlun í samræmi við skólanámskrá.