Í þessum lokaáfanga í ensku er lögð áhersla á að nemendur vinni með fjölbreytt efni og hafi val um margvísleg verkefni. Nemendur þjálfast í að tileinka sér aukinn orðaforða vísinda og fræða, verða læsir á flóknari texta en áður, tjá hugsun sína skýrt í ræðu og riti og rökstyðja skoðanir sínar. Áhersla er lögð á að lesa texta vandlega með það fyrir augum að byggja upp virkan og hagnýtan orðaforða. Nemendur vinna einstaklingsverkefni þar sem áherslan er á að nemendur auki við sig orðaforða sem tengist sinni braut. Þar að auki munu nemendur skoða valin bókmenntaverk út frá sjónarhorni félagsvísinda og náttúruvísinda. Nemendur vinna sjálfstætt að viðameiri verkefnum svo sem kynningum og stærri ritunarverkefnum, sem fela í sér öflun upplýsinga í gegnum margmiðlunarefi, á bókasafni og á Netinu. Áfram er lögð áhersla á að nemendur notist við sjálfsmat og jafningjamat í námi.
ENSK2TM05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu menningarsvæðum þar sem tungumálið er notað sem móðurmál eða fyrsta mál
ólíkum viðhorfum og gildum og hvernig þau móta menninguna í þeim löndum þar sem tungumálið er notað
þverfaglegum orðaforða til markvissrar notkunar í námi á háskólastigi
rithefðum sem við eiga í textasmíð, m.a. um inngang með efnisyrðingu, meginmál með vel afmörkuðum efnisgreinum og niðurlag
mismunandi afstöðu og túlkun bókmenntahöfunda og dýpri merkingu texta.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa fjölbreyttar gerðir texta, bæði fræðilega og bókmenntalega
lesa sér til fræðslu og/eða ánægju texta sem gera miklar kröfur til lesandans, bæði hvað varðar orðaforða og uppbyggingu
greina sögulegt, félagslegt, menningarlegt eða pólitískt samhengi í texta
nýta sér fyrirlestra, umræður og rökræður um efni menningarlegs eðlis
átta sig á málfarsmun, mismunandi málsniði og stíl í töluðu máli og undirliggjandi merkingu, viðhorfum og tilgangi þess sem talar
beita þeim lestraraðferðum sem við eiga eftir gerð texta eða viðfangsefnis
tjá sig munnlega skýrt og hnökralaust um málefni sem hann hefur kynnt sér
skilja sér til gagns þegar fjallað er um flókið efni.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
beita málinu af lipurð og kunnáttu til að geta tekið fullan þátt í umræðum og rökræðum þar sem fjallað er um persónuleg, menningarleg, félagsleg og fjölmenningarleg efni
flytja vel uppbyggða frásögn, kynningu eða greinargerð, draga fram aðalatriði og rökstyðja mál sitt nokkuð nákvæmlega með dæmum og bregðast við fyrirspurnum
skrifa texta með röksemdafærslu þar sem fram koma rök með og á móti og þau eru vegin og metin.
nýta nýjan orðaforða í ræðu og riti.
Leiðsagnarmat. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg lokapróf.