Áfanginn skiptist í tvo hluta. Í fyrri hluta er unnið með myndvinnsluforrit. Nemendur kynnast lagskiptri myndvinnslu, lýsingar- og litaleiðréttingu og fjölbreyttum möguleikum sem tækjastikur forritanna bjóða upp á. Nemendur læra að ganga frá ljósmyndaverki í samræmi við tilefni.
Í síðari hluta áfangans er unnið með hönnunarforrit. Nemendur glíma við uppsetningu mynda og texta og gera vefsíðu, bækling eða veggspjald og læra hvernig vista á skjöl miðað við tilefni.
Í báðum hlutum áfangans kynnast nemendur helstu frjálsu hönnunar-, myndvinnslu- og vefforritum sem aðgengileg eru hverju sinni.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grunnatriðum í stafrænni myndvinnslu, s.s. leiðréttingu á lit- og lýsingu, lagskiptingu og helstu verkfærum tækjastikunnar
grunnaðgerðum og helstu verkfærum í algengum vefsíðu- og hönnunarforritum
hvernig gengið er frá stafrænu efni
samspili myndar og texta
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna með stafrænar myndir í myndvinnsluforritum
vinna með mynd og texta í hönnunarforritum
að setja myndefni og texta á vefsíðu
velja viðeigandi forrit til að setja fram verkefni sín
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna á sjálfstæðan og skapandi hátt með margvísleg forrit við vinnslu og framsetningu á eigin hugmyndum og verkum
fullvinna verk með viðeigandi hætti til prentunar eða birtingar á skjá
fjalla á vitsmunalegan hátt um eigin verk og hugmyndir, sem og hugmyndir og verk annarra