Áfanginn felst í tónlistar- og menningarferð til Evrópu. Í undirbúningi fyrir ferðina vinna nemendur að undirbúningi fyrir tónleika sem verða haldnir í ferðinni. Nemendur afla sér einnig fróðleiks um viðburði og staðsetningar á svæðinu sem að þau hafa áhuga á að heimsækja og skoða. Nemendur heimsækja sögulega staði og fræðast um tónlistarmenningu landsins.
10 einingar á 2. þrepi í skapandi tónlist
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
undirbúningi tónlistarviðburðar erlendis
tónlist og menningu svæðis sem heimsótt er
sögu tónleikastaða og tónleikahalla svæðis sem heimsótt er
eigin vinnuframlagi og annarra
að þróa með sér aga, metnað, ábyrgð og jákvæðni í vinnubrögðum
mikilvægi samfélagsmiðla við kynningu á tónlist
hvernig á að skipuleggja fjáraflanir og framkvæma þær
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa sér til um tónlist og menningu framandi lands á erlendu máli
halda úti samfélagsmiðlum í undirbúningi og meðan á ferð stendur, sem að kynnir ferðina og fróðleik fyrir áhorfendum
taka þátt í samræðum og vinnu við tónlistarfólk á erlendu tungumáli
afla sér upplýsinga um tónlistarviðburði á svæði sem heimsótt er
afla sér upplýsinga um sögulegar staðsetningar, sögu tónleikastaða og menningu svæðis sem heimsótt er
upplifa og taka þátt í erlendri tónlistarmenningu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tjá sig um tónlistarmenningu og sögu frá svæði sem heimsótt er
vera meðvitaður/uð um mikilvægi tónlistar á svæði sem heimsótt er
sýna sjálfstæði við að undirbúa tónlistarviðburð erlendis
tjá sig um eigin upplifun fyrir, á meðan á ferð stendur og eftir að heim er komið
halda úti samfélagsmiðlum við kynningu á tónlist
þróa með sér aga, metnað, ábyrgð og jákvæðni í vinnubrögðum
sýna umburðarlyndi og virðingu gagnvart öðrum menningarheimum
meta eigið vinnuframlag
Í áfanganum er viðhaft símat alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.