Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1615381754.26

    Þolþjálfun
    LÞJÁ1ÞO03
    1
    Líkamleg þjálfun
    Þolþjálfun
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    Áfanginn er að mestu verklegur þar sem áhersla er lögð á þol og þolþjálfun. Í áfanganum verður fjallað um mikilvægi upphitunar fyrir hvers konar líkamlega þjálfun og farið er yfir muninn á loftháðri og loftfirrtri þolþjálfun. Nemendur læra um mismunandi þjálfunaraðferðir í þolþjálfun, hvernig hægt er að byggja upp og viðhalda þoli auk þess sem þeim verða kynntar mismunandi aðferðir til mælinga á þoli. Nemendur þurfa að taka þátt í skipulagðri þrekþjálfun hjá viðurkenndu íþróttafélagi eða sérhæfðum þjálfara að minnsta kosti þrisvar sinnum í viku.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi góðrar upphitunar í allri þjálfun
    • mismunandi þjálfunaraðferðum í þolþjálfun
    • muninum á loftháðri og loftfirrtri þolþjálfun
    • helstu hugtökum sem tengjast þolþjálfun s.s. Hvíldarpúls, hámarkspúls og þjálfunarpúls
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • setja upp upphitunaráætlun
    • setja upp æfingar og æfingaáætlun sem miðar að því að auka þol
    • finna eigin hvíldar- og hámarkspúls og reikna út æfingapúls
    • framkvæma próf til að meta þol
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • fara eftir eigin upphitunaráætlun
    • fara eftir eigin þolþjálfunaráætlun
    • mæla, meta, bæta og viðhalda eigin þoli
    Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati, nemendur þurfa að standast mætingarkröfur áfangans. Öll verkefni gilda til einkunnar.