Í áfanganum munu nemendur vinna enn frekar með þær aðferðir sem þeir lærðu í HANV1SG03. Unnin verða ákveðin verkefni sem dýpka færni, þekkingu og reynslu í meðferð fjölbreyttra efna eins og fínmálma, beina, horna og viðartegunda.
Nemendur vinna með hugmynd að fullunnu verki og sjá hana þróast í veruleika.
Lögð er áhersla á skapandi, vönduð og sjálfstæð vinnubrögð.
HANV1SG03
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Helstu tegundum fínmálma
Einfaldri mótagerð
Kveikingu og bræðslu málma
Verkfæra og tækjanotkun í málmsmíði
Ferli frá hugmynd að fullunnu verki
Mikilvægi þess að sýna öguð og vönduð vinnubrögð í handverki
Umhverfismennt og endurnýtingu efna
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Nota vinnubók/skissubók og að skrá hugmyndir sínar niður
Beita sjálfstæðum vinnubrögðum og að vera vandvirkur í verkefnavinnu
Skipuleggja eigið vinnuferli og gera uppdrætti/skissur að verkefni
Setja fram hugmyndir sínar á munnlegan hátt og ræða þær opinskátt
Vinna með ýmis náttúruefni og endurnýtanleg efni í listsköpun
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Nýta sér hæfni sína í listræna vinnu og sköpun
Sýna frumkvæði í verkefnavinnu og verkefnavali
Vinna með hugmyndir sínar á persónulegan hátt og sýna sjálfstæði
Nýta sér hversdagslega hluti í umhverfinu og nota þá í listsköpun
Beita gagnrýnni og skapandi hugsun og sýna áræðni og frumleika við lausnir vinnu sinnar
Vinna með efni úr nánasta umhverfi
Þroska færni sína og skilning á list og/eða hönnun
Vera sjálfbær og tileinka sér endurnýtanleg efni í listsköpun
Leiðsagnarmat. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg lokapróf.