Í áfanganum vinna nemendur verkefni með grunnaðferðum leirmótunar.
Einnig kynnast nemendur einfaldri gifsmótagerð.
Farið er í vinnuferli hönnunar, frá hugmynd að fullunnum nytjahlut þar sem hönnun bolla er skoðuð ásamt því að skilgreina hvað felst t.d. í vel hönnuðum nytjahlut.
Nemendur útbúa sitt eigið gifsmót og vinna úr því bolla með mismunandi útfærslum hvað varðar hanka,skreytingu og þess háttar. T.d. er hvatt til notkunar á fjölbreyttum efnum ásamt leir í hankana t.d. tré, málm, plast eða öðrum tilbúnum hlutum úr umhverfinu/náttúrunni.
Í áfanganum kynnast nemendur þeirri hugmyndavinnu og skissuvinnu sem fram fer fyrir fjöldaframleiðslu nytjahlutar,ásamt því að vinna skipulega í hugmynda og skissubók.
LEIR1MT03
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Einfaldri gipsmótagerð
Skapandi lausnaleit í gegnum tilraunavinnu ásamt hugmynda og skissuvinnu
Fjölbreytileika leirs og aðferða til sköpunar.
Að sjá fleiri og opnari möguleika í vinnuferlinu.
Sjálfum sér, hugsun og verklagi.
Hvernig menning og listir tengjast atvinnusköpun og samfélagsþróun.
Gildi menningararfsins, hvort sem hann snýr að heimabyggð eða heiminum öllum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Virkja hugmyndaflugið og þar með sköpunarkraftinn.
Geta notið lista og skapandi starfs á margvíslegu formi.
Geta skipst á skoðunum og átt uppbyggileg samskipti.
Nýta sér skissubók í hugmyndavinnu.
Vinna einfalt gifsmót.
Nýta fjölbreyttan efnivið til sköpunar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Tileinka sér skapandi lausnarhugsun sem hann getur nýtt bæði í leik og starfi.
Geta sýnt frumkvæði og skapandi hugsun.
Geta greint ný tækifæri í umhverfinu.
Geta notað fjölbreyttar aðferðir við að leysa viðfangsefni.
Horfa á sköpun, myndlist og hönnun með opnum hug.
Leiðsagnarmat. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg lokapróf.