Skíðaþjálfun, þjálfunaráætlanir og markmiðasetning
SKÞJ3ÞM05
3
Skíðaþjálfun
Þjálfunaráætlanir og markmiðasetning
Samþykkt af skóla
3
5
Áfanginn er að bæði bóklegur og verklegur þar sem áhersla er lögð á þjálfunaráætlanir og markmiðasetningu. Eitt af megin markmiðum áfangans er að nemendur geti sett sér skýr markmið og unnið markvisst að þeim. Í framhaldi af markmiðasetningu er fjallað um skipulagningu þjálfunar. Jafnframt fá nemendur fræðslu um næringu íþróttafólks og mikilvægi hugrænnar þjálfunar. Nemendur þurfa að taka þátt í skipulagðri skíða/snjóbretta þjálfun hjá viðurkenndu íþróttafélagi eða sérhæfðum þjálfara að minnsta kosti þrisvar sinnum í viku.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Mikilvægi þess að þjálfun sé bæði vel skipulögð og markviss
Uppbyggingu þjálfunaráætlana
Mikilvægi markmiðasetningar
Mikilvægi réttrar næringar fyrir íþróttafólk
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Setja sér skýr markmið
Nýta sér hugarþjálfun
Skipuleggja eigin þjálfun til lengri og skemmri tíma
Útbúa matardagbók
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Stjórna einbeitingu og spennustigi á æfingum og í keppnum
Skoða og meta mataræði sitt
Nýta þjálfun sína sem best til að bæta sig og ná sem bestum árangri í sinni íþrótt
Geta tekið þátt í umræðum um viðfangsefnin á faglegan og uppbyggilegan hátt
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar. Nemendur þurfa að uppfylla skilyrði um mætingu og virkni í tímum. Áfanginn er metinn út frá verkefnaskilum, mætingu, virkni, færni, áhuga og sjálfstæði.