Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1622797268.4

    Blak og körfubolti
    SERH3BK05
    2
    Sérhæfing
    Blak og körfubolti
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Áfanginn er bóklegur og verklegur með það að markmiði að nemandinn læri að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði í körfuknattleik og blaki. Áhersla er á tæknikennslu og kennslu í leikfræði og reglum. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grunnfærni í greininni og lögð er áhersla á mikilvægi þess að leikurinn sé kenndur á leikrænan og skemmtilegan hátt. Í lok áfangans eiga nemendur að vera færir um að stjórna, skipuleggja og leiðneina í blaki og körfubolta.
    ÍÞRF2þj05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • leikreglum
    • leik- og hreyfifræði
    • hvernig á að leiðbeina börnum
    • kennslu tækniæfinga
    • skipulagningu þjálfunar
    • fjölbreyttum leik- og tækniæfingum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • leiðbeina byrjendum og öðrum
    • nýta íþróttirnar sér til heilsubótar
    • halda mót fyrir smærri hópa
    • taka þátt í keppni
    • greina vandamál og finna lausnir
    • nota og útskýra mismunandi leikjafyrirkomulag leikjafyrirkomulög
    • nota og útskýra fyrir öðrum ýmsa leiki
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • bæta við eigið getustig
    • skipuleggja æfingar
    • stjórna hópi af börnum
    • átta sig á ólíkri getu einstaklinga í hópi
    • sækja um stöðu aðstoðarþjálfara hjá félögum