Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1622798228.77

    Jóga og lýðheilsa
    SERH3JL05
    3
    Sérhæfing
    Jóga og lýðheilsa
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Áfanginn er hvort tveggja bóklegur og verklegur. Markmiðið er að efla þekkingu á jógafræðum og kenna helstu undirstöðuatriði jóga. Auk þess verður fjallað um lýðheilsufræði. Í lok áfangans á nemandi að geta útskýrt hugmyndafræði jóga og helstu grunnæfingar ásamt því að vera upplýstur um helstu áhrifavalda heilbrigðis, forvarna og heilsueflandi aðgerða. Í lok áfangans eiga nemendur að vera færir um að stjórna, skipuleggja og leiðbeina í jóga. Einnig eiga nemendur að hafa þekkingu á grunnhugtökum lýðheilsufræða.
    ÍÞRF2þj05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • jógaiðkun
    • jógaæfingum
    • heimspeki jóga
    • öndun og slökun
    • áhrifavöldum heilbrigðis
    • forvörnum
    • heilsueflandi aðgerðum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • stunda jóga
    • gera jógaæfingar
    • tileinka sér helstu öndunar- og slökunaræfingar
    • útskýra og leita sér upplýsinga um heilsulæsi
    • nýta sér forvarnaraðgerðir sem eru byggðar á vísindalegum grunni
    • upplýsa einstaklinga um mismunandi heilsueflandi aðgerðir
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta framkvæmt helstu jógaæfingar
    • útskýra helstu jógaæfingar
    • útskýra heimspeki jógaiðkunar
    • leiða hóp í gegnum slökun og mismunandi öndunaræfingar
    • afla sér áreiðanlegra heimilda um áhrifavalda heilbrigðis
    • upplýsa einstaklinga og/eða hópa um forvarnir
    • upplýsa einstaklinga og/eða hópa um heilsueflandi aðgerðir