Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1623064037.7

    Viðburðastjórnun
    VIBS3VI05
    1
    Viðburðastjórnun
    Viðburðastjórnun
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum verður farið í helstu þætti viðburðastjórnunar. Markmið áfangans er að kynna verklag sem þarf að tileinka sér í faginu og undirbúa nemendur fyrir áframhaldandi nám í viðburðastjórnun. Nemendur fá að kynnast ýmsum hagnýtum og fræðilegum þáttum viðburðastjórnunar með það markmið að gefa þeim tækifæri til að undirbúa nokkra smærri viðburði þar sem þau fá þjálfun í að nýta þekkinguna sem þau hafa aflað sér í áfanganum.
    FJÁR2fl05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægum þáttum viðburðastjórnunar
    • hlutverki leiðtoga
    • straumum og stefnum í viðburðastjórnun
    • mikilvægi fjölbreyttra viðburða í samfélagslegum skilningi
    • fjárhagslegum og rekstrarlegum hluta viðburða
    • markaðsfræðilegri nálgun í viðburðastjórnun
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skipuleggja viðburð (áætlun um rekstur, mönnun, öryggismál og markaðsmál)
    • vinna með stórum hópi að sameiginlegu verkefni halda viðburð
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • meta á gagnrýninn hátt skipulag og framkvæmd viðburða
    • undirbúa, skipuleggja og halda viðburð