Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1623072733.59

    Starfsþjálfun
    ÍÞSÞ2SÞ02
    None
    Íþróttir starfsþjálfun
    Starfsþjálfun
    for inspection
    2
    2
    Markmið áfangans er að undirbúa nemendur undir þjálfun barna og ungmenna. Starfið getur verið tengt fjölbreyttri þjálfun í íþróttagrein hjá íþróttafélagi eða starfi í íþrótta- og frístundaskóla íþróttafélags eða leikskóla. Nemandinn verður látinn setja upp æfingaáætlun með íþróttakennara/þjálfara og kenna eftir þeirri áætlun. Æfingaáætlunin og kennslan er síðan metin. Nemendur þurfa að skila dagbók ásamt umsögn frá leiðsagnarkennara.
    ÍÞRF2þj05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mismunandi þjálfunar- og kennsluaðferðum
    • hvernig á að leiðbeina til að auka þekkingu og getu
    • hlutverki þjálfara/kennara
    • skipulagningu þjálfunar/kennslu
    • mismunandi aðferðum við þjálfun/kennslu
    • skipulagningu þjálfunar/kennslu
    • mismunandi aðferðum við þjálfun/kennslu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita mismunandi þjálfunar- og kennsluaðferðum
    • leiðbeina
    • skipuleggja þjálfun
    • nýta sér upplýsingatækni í skipulagningu þjálfunar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skipuleggja æfingar
    • geta gert æfingaáætlun
    • stjórna hópi
    • nýta sér upplýsingatækni í skipulagningu þjálfunar