Áfanginn er fyrir fólk sem vill læra íslensku sem annað tungumál. Lögð er áhersla á orðaforða tengdan jafnrétti, samskiptum, persónuleika, félagslífi, fréttum og fleira. Málfræði og orðaforði kenndur samhliða. Nemendur eru þjálfaðir í lesskilningi, samræðum, hlustun og ritun.
ÍSAN1LM05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
margskonar texta
töluðu og rituðu máli um samfélagsleg málefni
grundvallarþáttum íslensks málkerfis
orðaforða sem nýtist til að lýsa samskiptum og samfélagslegri umræðu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa texta sem innihalda orðaforða sem tengist jafnrétti, samskiptum og fleiru
taka þátt í samræðum
skrifa einfaldan texta
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
beita orðaforða sem notaður er í samskiptum um samfélagslega umræðu
miðla upplýsingum um fréttir, félagslíf og fleira
Leiðsagnarmat útfært í kennsluáætlun samkvæmt skólanámskrá. Áfanginn er án lokaprófs, fjölbreytt verkefni verða metin jafnt og þétt.