Áfanginn fjallar um almenna matreiðslu þar sem nemendur fá þjálfun í að fylgja uppskriftum til að útbúa máltíðir. Áhersla er lögð á undirbúning, framkvæmd og frágang við eldamennsku. Nemendur læra um næringu auk tengsl mataræðis og lífsstíls. Lögð verður áhersla á sjálfstæð vinnubrögð auk samvinnu nemenda.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi hollrar næringar og fjölbreyttu fæðuvali
fæðuhringnum og samsetningu fæðunnar
mikilvægi hreinlætis við eldamennsku
notkun helstu mælitækja, áhalda og tækja í eldhúsi
góðum og skipulögðum vinnubrögðum í eldhúsi
hvernig eldað er eftir uppskriftum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa utan á umbúðir og sjá hvaða hráefni eru í vörunni
sjá úr hvaða fæðuflokkum maturinn er
viðhafa hreinlæti við eldamennsku
nálgast uppskriftir á fjölbreyttan hátt
elda eftir uppskrift
vinna á skipulagðan hátt í eldhúsi
leggja á borð og ganga frá eftir borðhald.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skipuleggja fjölbreyttan og næringarríkan matseðil
elda hollan og fjölbreyttan mat
nýta tæki og áhöld í eldhúsi við matargerð
sýna góða umgengni og hreinlæti við matargerð
Leiðsagnarmat er viðhaft í hverjum tíma. Fjölbreytt verkefni eru metin jafnt og þétt yfir önnina og áhersla lögð á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Sjálfsmat og jafningjamat þar sem nemendur fá tækifæri til að meta sín eigin verk og vinnu og eins samnemenda sinna. Námsmat er nánar skilgreint í kennsluáætlun.