Áfanginn fjallar um matreiðslu og skipulag fyrir veislur og hátíðir. Áhersla er lögð á veisluhöld og verklag sem tengjast því að undirbúa og halda veislur. Nemendur fá þjálfun í sjálfstæðum vinnubrögðum og samvinnu við aðra nemendur.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
ýmsum hátíðum og tyllidögum
að skipuleggja þarf afmæli og annars konar veislur með góðum fyrirvara
að áætla þarf magn veitinga út frá fjölda gesta
undirbúningi innkaupalista miðað við fjölda gesta
hvernig leggja skal á veisluborð fyrir réttan fjölda og mismunandi tilefni
á því hverju þarf að huga að þegar tekið er á móti gestum
notkun helstu mælitækja, áhalda og tækja í eldhúsi
góðum og skipulögðum vinnubrögðum í eldhúsi
mikilvægi hreinlætis í fjölmenni.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
taka á móti gestum og bjóða upp á veitingar
skipuleggja afmæli og tækifærisveislur
beita fjölbreyttum aðferðum og áhöldum við ólíka matargerð
vinna sjálfstætt og í samvinnu við aðra nemendur
lesa úr og nota mismunandi uppskriftir
beita fjölbreyttum aðferðum og áhöldum við ólíka matargerð
meðhöndla viðeigandi hráefni/ áhöld
vinna á skipulagðan hátt í eldhúsi
leggja á borð og ganga frá eftir borðhald
viðhafa viðeigandi hreinlæti.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skipuleggja og halda veislu
finna uppskriftir eftir ólíkum leiðum
útbúa fjölbreyttar veitingar
nýta tæki og áhöld í eldhúsi við matargerð
sýna góða umgengni og hreinlæti við matargerð
fara eftir almennum öryggisatriðum við eldhússtörf
sýna sjálfstæði í vinnubrögðum.
Leiðsagnarmat er viðhaft í hverjum tíma. Fjölbreytt verkefni eru metin jafnt og þétt yfir önnina og áhersla lögð á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Sjálfsmat og jafningjamat þar sem nemendur fá tækifæri til að meta sín eigin verk og vinnu og eins samnemenda sinna. Námsmat er nánar skilgreint í kennsluáætlun.