Í áfanganum verður unnið með prósentureikning þar sem lögð er áhersla á að nemendur tileinki sér grunnaðferðir prósentureiknings og tengsl við verðlag. Áhersla verður á prósentureikning með fjölbreyttri nálgun. Það verður m.a. gert með mismunandi verkefnavinnu, vettvangsferðum í verslanir, veraldarvefurinn verður notaður ásamt tilboðsbæklingum og spilum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
prósentum
hækkuðu og lækkuðu verðlagi
meðferð hjálpartækja
að finna mismunandi aðferðir og lausnir út frá gefnum upplýsingum
spilum í spilastokki.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota algeng stærðfræðitákn
vinna með tölur á fjölbreyttan hátt
beita grunnreikniaðgerðum (samlagningu, frádrætti, margföldun og deilingu)
nota hjálpartæki
beita viðeigandi aðgerðum og nota þær á réttan hátt.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
finna mismunandi aðferðir og lausnir út frá gefnum upplýsingum
setja fram tölulegar upplýsingar og skrá lausnir sínar á skipulagðan hátt
beita skipulögðum aðferðum við lausn verkefna sem tengjast námsefninu
temja sér gagnrýna en um leið skapandi hugsun
tileinka sér sjálfstæð vinnubrögð
nýta þau hjálpartæki sem bjóðast við stærðfræði daglegs lífs.
Leiðsagnarmat er viðhaft í hverjum tíma. Fjölbreytt verkefni eru metin jafnt og þétt yfir önnina og áhersla lögð á munnlegar og skriflegar umsagnir sem leiða nemandann áfram. Sjálfsmat og jafningjamat þar sem nemendur fá tækifæri til að meta sín eigin verk og samnemenda sinna.