Meginstef áfangans er enskur orðaforði sem tengist afþreyingu í tölvum og tækni. Áhersla er lögð á að nemendur kynni sér afþreyingu í tölvum en ekki síst að þeir kynni sín hugðarefni tengd tölvum fyrir samnemendum sínum og kennurum. Með verkefnavinnu velta nemendur tölvutengdri afþreyingu fyrir sér en skoða einnig samskipti og vináttu sem tengist tölvunotkun. Vinnuferlið miðast einnig við að efla sjálfstæða og gagnrýna hugsun þegar kemur að tölvunotkun.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
orðaforða í tengslum við tölvur og tölvunotkun
ýmsum aldurs- og áhugamiðuðum hugtökum
réttri stafsetningu algengra orða sem koma fyrir í námsefni
mikilvægi þess að hafa ensku á valdi sínu bæði á atvinnumarkaði og í einkalífi
samtali á myndbandi.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
taka þátt í samræðum
lesa og skilja einfaldan texta og vinna verkefni tengd honum
byggja upp og bæta við orðaforða sinn með mismunandi aðferðum
tjá sig munnlega um skoðanir sínar sem og ræða málefni líðandi stundar
halda stutta kynningu fyrir samnemendur og/eða kennara
greina framburð algengra orða.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta ritað skilaboð á enskri tungu
hlusta á og skilja enskan texta
nota orðaforða og þekkingu í ensku við mismunandi aðstæður
sýna frumkvæði og sjálfstæði í notkun upplýsingatækni og hjálpargagna sem nýtast í tungumálanámi
lesa í umhverfi, samskipti, tilfinningar og reglur í þeim tilgangi að átta sig á hvað er viðeigandi hverju sinni.
Leiðsagnarnám er viðhaft í hverjum tíma. Fjölbreytt verkefni eru metin jafnt og þétt yfir önnina og áhersla lögð á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Sjálfsmat og jafningjamat þar sem nemendur fá tækifæri til að meta sín eigin verk og vinnu og eins samnemenda sinna. Námsmat er nánar skilgreint í kennsluáætlun.