Áfanginn leggur áherslu á að nemendur kynni sér bókmenntir og sagnahefðir á ensku. Með verkefnavinnu þjálfast nemendur í að lesa texta á ensku og ræða innihald hans og umgjörð. Vinnuferlið miðast við að efla færni og sjálfstæði til að velja sér lesefni við hæfi og þjálfast í að tjá sig um það á ensku.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
fjölbreyttum orðaforða í tengslum við efni áfangans
algengum orðum og orðasamböndum
réttri stafsetningu algengra orða sem koma fyrir í námsefni
mikilvægi þess að geta lesið sér til gagns á ensku
lestri bókmenntatexta sem eykur skilning og orðaforða.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
taka þátt í samræðum
byggja upp og bæta við orðaforða sinn með mismunandi aðferðum
lesa og skilja fjölbreytta texta (smásögur, greinar og lengri texta, s.s. skáldsögur)
finna sér bókmenntir við hæfi á bókasöfnum og öðrum stöðum
lesa og/eða hlusta á texta sér til gagns og gamans.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
túlka megininnhald lesinna texta
beita fjölbreyttum aðferðum við að efla orðaforða sinn
lesa enskar bókmenntir til gagns og gleði
auka sjálfstraust og trú á eigin getu við að skilja og tjá sig á ensku
nýta sér læsi í víðu samhengi.
Leiðsagnarnám er viðhaft í hverjum tíma. Fjölbreytt verkefni eru metin jafnt og þétt yfir önnina og áhersla lögð á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Sjálfsmat og jafningjamat þar sem nemendur fá tækifæri til að meta sín eigin verk og vinnu og eins samnemenda sinna. Námsmat er nánar skilgreint í kennsluáætlun.