Áfanginn fjallar um fjölmiðla, samfélagsmiðla og skapandi skrif. Fjallað er um ólíkar gerðir fjölmiðla og samfélagsmiðla, hlutverk þeirra, helstu kosti og annmarka. Nemendur fá reynslu af því að útbúa sjálfir fjölmiðlaefni. Nemendur vinna með margvíslegan texta og þjálfast í tjáskiptum, ritun og framsetningu efnis á fjölbreyttan hátt. Áhersla er lögð á þjálfun í lestri, ritun, tjáningu og málnotkun á fjölbreyttan hátt. Lögð verður áhersla á sjálfstæð vinnubrögð auk samvinnu nemenda. Nemendur nýta sér hljóðbækur og talgervla við námið.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hlutverkum fjölmiðla og samfélagsmiðla
kostum og göllum fjölmiðla og samfélagsmiðla
notkun íslensku í fjölmiðlum og samfélagsmiðlum
gerð fjölmiðlaefnis og efnis fyrir samfélagsmiðla
hugtakinu tjáningarfrelsi
ólíkum ritstílum
muninum á persónulegum boðskiptum og fjöldaboðskiptum
notkun hjálpargagna við ritun.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
greina hlutverk fjölmiðla og samfélagsmiðla
nota íslensku á viðeigandi hátt eftir miðlum
útbúa efni fyrir mismunandi gerðir miðla
greina muninn á persónulegum boðskiptum og fjöldaboðskiptum
nota talgervil, hljóðbækur og aðra tækni við námið.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nýta sér fjölmiðla og samfélagsmiðla á ábyrgan hátt
nota íslenskt tungumál á viðeigandi hátt eftir miðlum
tjá sig um hlutverk og inntak ólíkra miðla
koma hugðarefnum sínum frá sér með ritsmíðum
setja upp og ganga frá texta á viðunandi hátt
nýta sér talgervla og önnur hjálpartæki við lestur.
Leiðsagnarnám er viðhaft í hverjum tíma. Fjölbreytt verkefni eru metin jafnt og þétt yfir önnina og áhersla lögð á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Sjálfsmat og jafningjamat þar sem nemendur fá tækifæri til að meta sín eigin verk og vinnu og eins samnemenda sinna. Námsmat er nánar skilgreint í kennsluáætlun.