Áfanginn fjallar um fjölbreyttar tómstundir og afþreyingu sem fólk stundar sér til dægradvalar. Leiðarljós lífsleikni er að efla félags-, siðferðis- og tilfinningalega þætti nemenda. Unnið er með jákvæða sjálfsmynd nemenda með því að efla sjálfstraust og trú á eigin getu. Þeir fá þjálfun í að koma tilfinningum, hugsunum og skoðunum sínum á framfæri á fjölbreyttan hátt. Nemendur eru hvattir til að beita gagnrýnni hugsun, rökstyðja skoðanir sínar og taka tillit til skoðana annarra. Unnið með markmiðasetningu og mikilvægi heilbrigðs lífsstíls. Nemendur fá þjálfun í að virða meginreglur í mannlegum samskiptum og taka þátt í umræðum. Áhersla er lögð á að nemendur temji sér umburðarlyndi gagnvart fjölbreytileika samfélagsins, ígrundi eigin lífsgildi og hvað felst í hugtökum eins og virðingu, trausti, skilningi, jákvæðni, sveigjanleika, einlægni og þolinmæði. Einstaklingsmiðaðar námsáætlanir eru unnar út frá markmiðum aðalnámskrár framhaldsskóla, ásamt bakgrunnsupplýsingum um þarfir nemenda og mati á stöðu í námi og þroska hvers og eins.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi eigin ábyrgðar á velferð sinni, líkamlegri og andlegri
að allir hafa hæfileika og þroskamöguleika
styrkleikum sínum
kostum góðs og heilbrigðs félagslífs
mikilvægi jákvæðrar framtíðarsýnar
að til eru fjölbreyttar tómstundir
að tómstundir geta verið ánægjulegar og hægt er að velja tómstundir við hæfi
að tómstundir geta verið einungis til afþreyingar en líka haft menntunarlegt gildi
eigin mörkum og virða mörk annarra
gildi heilbrigðs lífsstíls
skaðsemi fíknihegðunar/vímuefna
mismunandi námstækni, upplýsinga- og tölvutækni
þýðingu þess að lifa í samfélagi við aðra
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
bera ábyrgð á eigin velferð, líkamlegri og andlegri
velja tómstund sem hentar honum
efla félagsþroska sinn
eiga góð samskipti við aðra
setja sér markmið í samræmi við getu
efla sjálfsvitund sína og öðlast trú á sjálfum sér
verða betur meðvitaður um sjálfan sig, áhugasvið sitt og styrkleika
skoða markmið sín og lífsstíl
vinna með öðrum
beita algengum samskiptareglum við mismunandi félagslegar aðstæður
taka virkan þátt í félagslífi skólans í samræmi við sitt áhugasvið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna með öðrum
beita algengum samskiptareglum við mismunandi félagslegar aðstæður
taka virkan þátt í félagslífi skólans í samræmi við sitt áhugasvið
átta sig á fjölbreytileika samfélagsins og mismunandi menningarheimum
prófa að taka þátt í uppbyggjandi og fjölbreyttum tómstundum
stunda uppbyggjandi tómstundir um langt skeið
Leiðsagnarnám er viðhaft í hverjum tíma. Fjölbreytt verkefni eru metin jafnt og þétt yfir önnina og áhersla lögð á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Sjálfsmat og jafningjamat þar sem nemendur fá tækifæri til að meta sín eigin verk og vinnu og eins samnemenda sinna. Námsmat er nánar skilgreint í kennsluáætlun.