Lífsleikni með áherslu á kynheilbrigði, samskipti og kynfræðslu
LÍSÉ1KY04
3
Lífsleikni á sérnámsbraut
kynfræðsla, samskipti
Samþykkt af skóla
1
4
Áfanginn fjallar um kynheilbrigði, samskipti í nánum samböndum og almenna kynfræðslu. Áhersla verður lögð á opnar umræður um ólíkar tilfinningar, þarfir, langanir og sjálfsþekkingu einstaklinga. Fréttir og samfélagsleg umræða um efnið verður skoðuð. Nemendur fá líka að kynnast þeim herferðum sem unnar hafa verið til fræðslu um kynheilbrigði og samskipti.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
kynþroskaskeiðinu
eigin mörkum og mikilvægi þess að virða mörk annarra
hugtökum um líkamshluta og kynlíf
mikilvægi kynheilbrigðis
algengum kynsjúkdómum og getnaðarvörnum
hugtakinu kynhneigð
ábyrgri kynhegðun.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
bera virðingu fyrir sjálfum sér
íhuga og kanna eigið viðhorf til kynlífs
þekkja líkama sinn, starfsemi og vita hvaða hlutverki helstu líkamshlutar gegna
vera meðvitaður um að hann ráði yfir líkama sínum
kunna að setja mörk og virða mörk annarra
leita sér upplýsinga varðandi kynfræðslu
tjá skoðanir sínar og tilfinningar á uppbyggilegan hátt.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja mikilvægi þess að bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum
taka ábyrga afstöðu til eigin velferðar, líkamlegrar og andlegrar
taka ábyrgð á eigin lífsstíl
taka ígrundaðar ákvarðanir varðandi kynheilbrigði sitt
vera meðvitaður um að kynferðisleg tjáning getur verið mismunandi
taka ábyrgð á eigin kynhegðun
geta valið og hafnað í athöfnum og samskiptum.
Leiðsagnarnám er viðhaft í hverjum tíma. Fjölbreytt verkefni eru metin jafnt og þétt yfir önnina og áhersla lögð á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Sjálfsmat og jafningjamat þar sem nemendur fá tækifæri til að meta sín eigin verk og vinnu og eins samnemenda sinna. Námsmat er nánar skilgreint í kennsluáætlun.