Áhersla verður lögð á textílnám í víðu samhengi: Þekkingaröflun, hugmyndavinnu, sköpun, þar sem nemendur vinna með tilheyrandi efni og áhöld.
Í byrjun áfangans verður nemendum kynnt ýmis litarefni fyrir þrykk og gerðar tilraunir með te, ávexti, grænmeti, krydd og jurtir sem eru soðin eða lituð. Notaðar eru ýmsar gerðir textílefna til að sjá hvernig þau taka við litnum. Nemendur kynnast sólarþrykki (sunprint).
Nemendur koma síðan til með að nota þrykkin sín á stóra púða, svuntur og fleira ef tími gefst til.
Nemendur eru hvattir til að skrá inn allar hugmyndir og tilraunir í hugmyndabók um framvindu verkefna í hverjum tíma.
Notast verður við saumavélar og allt sem við kemur saum, efni ýmiskonar, textílefni og náttúruefni til þrykks.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
aðferðum við textílþrykk
ýmsum aðferðum við mynsturgerð
gildi hugmyndabókar
grunnaðferðum og áhöldum greinarinnar.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
að skilja notkun hugmyndabókar, skráningu vinnuferlis og hugmynda
geta vegið og metið hvort aðferð við verkefnavinnu beri árangur
nýta sér aðferðir sem hann hefur lært til að vinna skapandi verkefni
geta nýtt sér ólíkar gerðir við mynsturgerð og litun textílefna
nota saumavél og beita áhöldum greinarinnar.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta valið saman aðferð, efni, mynstur og litun á frumlegan og persónulegan hátt.
vinna með snið, taka mál og áætla stærðir og efnisþörf
getað áttað sig á vinnuferli frá hugmynd til lokaafurðar
geta unnið sjálfstætt eftir vinnuferli frá hugmynd til lokaafurðar.
Leiðsagnarnám er viðhaft í hverjum tíma. Fjölbreytt verkefni eru metin jafnt og þétt yfir önnina og áhersla lögð á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Sjálfsmat og jafningjamat þar sem nemendur fá tækifæri til að meta sín eigin verk og vinnu, eins samnemenda sinna. Námsmat er nánar skilgreint í kennsluáætlun.