Í áfanganum verða skoðuð störf á vinnumarkaði og kynntir fjölbreyttir vinnustaðir, tilgangur starfa og mikilvægi þeirra í tengslum við önnur störf. Skoðaðar verða ólíkar kröfur sem gerðar eru til starfsfólks í ólíkum störfum og hvaða skilyrði þarf að uppfylla til að öðlast réttindi í tilteknum atvinnugreinum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
fjölbreyttum vinnustöðum
mismunandi kröfum sem gerðar eru til starfsfólks í ólíkum störfum
hvaða skilyrði þurfi að uppfylla til að öðlast réttindi í ákveðnum atvinnugreinum
möguleikum hans til frekara náms
tilgangi starfa og mikilvægi þeirra í tengslum við önnur störf
þeim reglum og kröfum sem tilheyra ákveðnum störfum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
meta möguleika sína varðandi nám og atvinnu
leita að og nýta sér upplýsingar um nám og störf
sækja sér upplýsingar um áhugaverð starfsheiti
flokka fyrirtæki eftir starfsemi þeirra
beita fjölbreyttu verklagi og vinna eftir skipulagi
bera ábyrgð á sjálfum sér og eigin gjörðum.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
gera sér grein fyrir mismunandi atvinnugreinum
meta þau atriði sem taka ber tillit til við starfsval
þekkja mismunandi starfsheiti og átta sig á hlutverkum sem felst í þeim
átta sig á mismunandi kröfum sem liggja að baki ólíkra starfa
meta möguleika sína hvað varðar nám, atvinnu, búsetu og áhugamál.
Leiðsagnarnám er viðhaft í hverjum tíma. Fjölbreytt verkefni eru metin jafnt og þétt yfir önnina og áhersla lögð á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Sjálfsmat og jafningjamat þar sem nemendur fá tækifæri til að meta sín eigin verk og vinnu og eins samnemenda sinna. Námsmat er nánar skilgreint í kennsluáætlun.