Í þessum grunnáfanga eru grundvallarhugtök ritunar, bókmennta og málnotkunar tekin til skoðunar. Unnið er með tungumálið á fjölbreyttan hátt og áhersla lögð á skapandi og hagnýt skrif, málfar og aukinn orðaforða. Nemendur kynna sér margs konar málsnið og fjölbreytta nytjatexta, svo sem bókmenntir, dagblaða- og tímaritatexta, auk texta á netinu. Lesnar verða smásögur og horft á kvikmynd. Nemendur þjálfast í heimildaöflun og viðurkenndum vinnubrögðum við meðferð heimilda ásamt því að læra ýmislegt um frágang ritaðs máls á hinum ýmsu formum.
Grunnskólapróf
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu hugtökum í ritgerðasmíð
hugtökum í bókmenntafræði og bragfræði í umfjöllun um bókmenntir
fjölbreyttum tegundum texta
sérkennum ritmáls og talmáls
grundvallarvinnubrögðum við skrif heimildaritgerða
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa sér til gagns og gamans mismunandi tegundir texta og fjalla um inntak þeirra
kynna sér tiltekið efni og taka afstöðu til þess
skrifa ritgerð þar sem hann beitir gagnrýninni hugsun og kemur skoðun sinni á framfæri á skýran og greinargóðan hátt
afla upplýsinga eftir fjölbreyttum leiðum
beita stafsetningarreglum í rituðu máli
nota bókmenntahugtök þar sem við á
nota viðeigandi hjálpargögn við frágang verkefna
tjá kunnáttu sína á munnlegan og skriflegan hátt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
taka gagnrýna afstöðu til mismunandi textategunda og færa rök fyrir máli sínu
vinna að skapandi verkefnum í tengslum við námsefnið á ólíkum formum
beita skýru og blæbrigðaríku máli í ræðu og riti
vinna sjálfstætt og í samvinnu við aðra á gagnrýninn hátt
túlka texta þótt merkingin sé ekki alltaf augljós
tjá afstöðu sína og efasemdir um viðfangsefnið og komast að niðurstöðu
Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metin jafnóðum allan námstímann. Til grundvallar matsins eru fjölbreytt verkefni úr ólíkum efnisþáttum.