í áfanganum læra nemendur undirstöðuatriði í körfuknattleik. Lögð er áhersla á kennslu knatttækni og leikfræði fyrir byrjendur. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grundvallarfærni í greininni. Farið er yfir helstu atriði í þjálffræði barna og mikilvægi þess að leikurinn sé greindur sundur í stuttar einingar, leikæfingar. Nemendur þjálfist í kennslu körfuknattleiks. Áfanginn er bóklegur og verklegur.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
að leiðbeina börnum á mismundandi aldri í körfuknattleik í samráði við kennara
leikfræði íþróttarinnar
skipulagi á þjálfun fyrir börn og unglinga
leikreglum
helstu þjálfunaraðferðum
mikilvægi á fjölbreyttum tækni- og leikæfingum í körfuknattleik
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Búa til tímaseðla fyrir mismunandi aldur körfuknattleiks iðkanda
beita flautu og dæma körfuknattleik
beita mismunandi þjálfunaraðferðum með ákveðin markmið að leiðarljósi svo sem þol, kraft og tækni
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta leiðbeint ýmsum aldurshópum í körfuknattleik í samráið við kennara
geta búið til tímaseðla, vikuáætlun og mánaðaráætlun með ákveðinn aldur í huga