Áfanginn er unninn á síðasta námsári. Nemandi velur sér viðfangsefni og skipuleggur í samráði við leiðbeinanda. Hægt er að útfæra verkefnin á ýmsan hátt, s.s. í formi ritgerðar, vefsíðu, heimildamyndar, sýningar, tímaritsgreinar, bókagerðar, portfolio, útvarpsþáttar eða rannsóknarskýrslu. Mikil áhersla er lögð á sjálfstæð og skapandi vinnubrögð. Gert er ráð fyrir að nemandi velji efni tengt sinni braut þótt mögulegt sé að víkja frá þeirri reglu. Afrakstur allra lokaverkefna er kynntur innan VA í annarlok og birtur á heimasíðu skólans. Einnig er æskilegt að verkefnin séu gerð sýnileg í nærsamfélaginu. Áfanginn gefur möguleika á þverfaglegu samstarfi.
Miðað er við að nemendur vinni lokaáfangann sem einstaklingsverkefni þótt þeir geti óskað eftir að gera það tveir og tveir saman. Hafi nemendur hug á að vinna í fjölmennari hópum þarf að rökstyðja það sérstaklega og lýsa fyrirfram hlutverki og vinnuframlagi hvers og eins.
Nemandi skal hafa lokið a.m.k.130 einingum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
ákveðnu sviði faggreinar sinnar; uppbyggingu, aðferðum, hugtökum, sérkennum og sögu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skipuleggja verkefni með ábyrgum og sjálfstæðum hætti
sýna frumkvæði og skapandi nálgun
lesa fræðilegan texta og vinna úr honum samkvæmt viðurkenndum reglum um meðferð heimilda
beita viðeigandi aðferðum við útfærslu verkefnis
tjá sig á skýran, ábyrgan, gagnrýninn og skapandi hátt um eigið verkefni
velja viðeigandi miðlunaraðferð og beita henni af öryggi
taka þátt í samvinnu þegar við á
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
þróa hugmyndir og sýna sjálfstæði, áræðni og innsæi við útfærslu þeirra og túlkun
greina, tjá sig um og meta eigin verkefni og annara af þekkingu, víðsýni og virðingu
takast á við ný verkefni og breyta hugmynd í afurð
vera meðvitaður um styrkleika sína
átta sig á virði verkefnisins og menntunar sinnar fyrir samfélag og atvinnulíf
standa að sýningu/viðburði og miðla þar verkefnum sínum
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.