Í áfanganum verður fléttuð saman fræðsla og hreyfing og leitast við að hvetja nemandann til heilbrigðari lífshátta. Lögð verður áhersla á fjölbreytta líkamsþjálfun, mikilvægi næringar, áhrif umhverfis og menningar á heilsu, hreinlæti, kynheilbrigði og fleira sem tengist því að auka heilsulæsi einstaklingsins og ábyrgð hans á eigin heilsu. Unnið er markvisst að því að nemandi finni hreyfingu við sitt hæfi út frá getu og áhuga og öðlist færni í að skipuleggja eigin þjálfun auk þess sem farið er í grunnatriði réttrar líkamsbeitingar. Nemandi fræðist um hollt mataræði, skoðar eigið mataræði og mögulegar leiðir til að bæta það. Þá eru sköpuð tækifæri til að spreyta sig á fjölbreyttum aðferðum til þol-, styrktar- og liðleikaþjálfunar auk þess sem boðið verður upp á mælingar, t.d. á þoli og styrk, blóðþrýstingi og púlsi.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
þeim þáttum sem hafa áhrif á heilsu okkar
mikilvægi andlegrar, félagslegrar og líkamlegrar vellíðunar
hvernig nemandi getur haft áhrif á þá þætti sem stjórna eigin vellíðan
mikilvægi þess að byggja upp virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum með því að rækta líkama sinn og sál
áhrifum umhverfis og menningar á hugmyndir fólks um heilsu og heilbrigði
mikilvægi upphitunar, úthalds- styrktar- og liðleikaþjálfunar
leiðum til að nýta líkams- og heilsurækt í daglegum athöfnum
æfingum sem bæta líkamsstöðu
fjölbreyttum aðferðum til heilsuræktar
hvaða áhrif hollt, fjölbreytt og reglulegt mataræði hefur á líkamann
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
auka úthald sitt, styrk og liðleika með fjölbreyttum aðferðum sem henta hverjum og einum
stunda æfingar og hreyfingu sem stuðlar að bættri líkamsbeitingu
stunda þjálfun og hreyfingu sem hefur áhrif á jákvæða upplifun og viðhorf til líkams- og heilsuræktar
nota samvinnu til að stuðla að tillitssemi og hvatningu
temja sér hollt og gott mataræði
beita líkamanum rétt
nota heilsulæsi til að efla og viðhalda góðri andlegri og líkamlegri heilsu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
styrkja jákvæða sjálfsmynd með þátttöku í almennri heilsurækt, leikjum og útiveru
skilja gildi samvinnu í leik og keppni
nýta upplýsingar á netinu er varða heilsusamlegan lífsstíl, jákvæða sjálfsmynd og geðheilbrigði
sýna öðrum virðingu við leik, nám og störf
glíma við fjölbreytt verkefni sem snúa að alhliða hreyfingu, líkams- og heilsurækt
nýta nánasta umhverfi sitt og náttúru til heilsuræktar
tileinka sér hollar og fjölbreyttar fæðuvenjur
nýta sér undirstöðuatriði líkamsbeitingar í þjálfun
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.